Í tengslum við útgáfu á bókunum Geðraskanir án lyfja sem Sigurlaug, stofnandi og formaður Kærleikssamtakanna, hefur skrifað um bataferli sitt við geðröskunum, þá hefur sjálfsútgáfa verið allan tímann leiðin sem átti að fara með þessar bækur. Til að mynda átti ekki að lesa þær yfir í bókmenntalegum skilningi og ekki mátti leiðrétta neitt því þá hefði innihald þeirra misst marks. Mikilvægt er að skrifin haldi sér því það sýnir best af öllu ójafnvægið sem var til staðar og svo jafnvægið sem myndaðist skref fyrir skref á öllum sviðum í lífinu.
Sigurlaug hefur gefið bækur sínar sjálf út en það vantaði upp á þekkingu á útgáfuferli og markaðsetningu. Einnig tók það hana langan tíma að koma þriðju bókinni út en sú bók hefur haft mestu áhrifin á hana og hefur verið erfiðast að lesa hana yfir og undirbúa fyrir útgáfu. Sumarið 2024 byrjaði hún á árs námskeiði um sjálfsútgáfu og þegar kom að því að stofna útgáfufélag, þá fæddist sú hugmynd að geta aðstoðað einstaklinga sem hafa svipaðar sögur að segja.
Þannig varð Sjálfshjálp bókaútgafa Kærleikssamtakanna til.
Kærleikssamtökin geta aðstoðað með kostnað sem fylgir útgáfuferlinu og stutt einstaklinga í að koma sögum sínum í bók, hvort sem er smásaga eða lengri saga. Smásögum er hægt að safna saman í eina bók og smásaga getur oft verið undanfari heillrar bókar. Á móti rennur hluti sölunnar til samtakanna í ákveðinn tíma til að útlagður kostnaður skili sér aftur. Höfundurinn heldur ávallt höfundarétti sínum og getur valið eftir samningstímann að gefa þær út sjálf/-ur eða halda þeim áfram hjá útgáfafélagi samtakanna.
Verið er að koma upp netverslun fyrir bókaútgáfufélagið.
Sigurlaug er að vinna í því að koma bókum sínum á bókasöfn og í bókaverslanir.
Bækurnar voru auglýstar í Bókatíðindum í ár - sjá nánar.
Fyrir fyrirspurnir vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið sjalfshjalp@sjalfshjalputgafa.is.
♥ ♥ ♥
VILLT ÞÚ STYRKJA STARF KÆRLEIKSSAMTAKANNA:
Ef þú villt styrkja starf og úrræði Kærleikssamtakanna þá er hægt að velja úr styrktarleiðum sem eru kynntar hér.
Fyrir fyrirspurnir er hægt að fylla út hafa samband eða senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleikssamtokin.is.
♥ ♥ ♥
TILGANGUR FÉLAGSINS
Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.
♥ ♥ ♥