STYRKTARLEIÐ 3
Felst í því að leggja Kærleikssamtökunum almannaheillafélag (fta) lið með því að styrkja félagið með föstum mánaðarlegum greiðslum.
Fyrir fyrirspurnir er hægt að fylla út "Hafa samband" eða senda tölvupóst á netfangið kls@kaerleikssamtokin.is.
Kærleikssamtökin þakka kærlega fyrir alla styrki og er þeim varið í tilgang og markmið félagsins sem geta verið mismunandi verkefni hverju sinni. Unnið er uppbyggilegt starf sem felst í að aðstoða einstaklinga aftur af stað út í lífið.
Styrkir á bilinu 10-350.000 kr. (á almanaksári) til Kærleikssamtakanna veita skattaafslátt þar sem félagið er skráð í almannaheillaskrá hjá Ríkisskattstjóra. Kærleikssamtökin senda upplýsingar um styrktaraðila og upphæðir til RSK ár hvert. Styrkirnir koma fram á álagningarseðlinum. Ekki er nauðsynlegt fyrir styrktaraðila að tilgreina styrktarupphæðir á framtali sínu en gott er að halda utan um kvittanir til afstemmingar.
Fyrir þá sem vilja leggja mánaðarlegar styrktargreiðslur beint inn á reikning félagsins er hægt að setja upp "endurteknar millifærslur" í heimabankanum sínum og velja dagsetningu. Hér eru pdf skjöl með upplýsingum um stofnun þeirra í hverjum banka fyrir sig. Mikilvægt er að skrá rétt það sem er merkt í rauðu letri.
Endurteknar millifærslur fyrir Arion banka (pdf).
Endurteknar millifærslur fyrir Íslandsbanka (pdf).
Endurteknar millifærslur fyrir Landsbanka (pdf).
Fyrir þá sem vilja vera með mánaðarlegar styrktargreiðslur á kreditkorti þarf að velja upphæð og fylla út þetta form:
♥ ♥ ♥
TILGANGUR FÉLAGSINS
Tilgangur og markmið félagsins er að gæta hagsmuna og reka félagsstarf fyrir einstaklinga sem eru félagslega einangraðir vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla, með áherslu á jaðarsetta og viðkvæma hópa í þjóðfélaginu.
♥ ♥ ♥