Kæru vinir gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Nú er 17. þáttur okkar af Verkfærakassanum komin út.
Í þessum 17. þætti verkfærakassans ræðir Hrabbý við Sigurlaugu Guðnýju Ingólfsdóttur forsvarsmann Kærleikssamtakanna (Kærleikssamtökin). Sigurlaug segir hlustendum á afar einlægan hátt frá baráttu sinni við geðsjúkdóma og ákvörðun sinni um að ná bata án geðlyfja sem leiddi hana í viðburðaríkt ferðalag sjálfskoðunar. Samtalið fer víða þar sem þær ræða meðal annars bækur sem Sigurlaug skrifaði sem hluta af bataferlinu, stofnun og tilgang Kærleikssamtakanna og hugmyndafræðina á bak við áfangaheimili sem samtökin nú reka fyrir þá sem ekki eiga í önnur hús að vernda. Afar áhugavert og hugvekjandi spjall við hugsjónakonu sem farið hefur óhefðbundnar leiðir til að ná árangri, bæði í sinni eigin sjálfsvinnu sem og við að hjálpa öðrum.
Athugasemdir