AÐALFUNDUR KÆRLEIKSSAMTAKANNA

Ágæti félagsaðili.

Aðalfundur Kærleikssamtakanna verður haldinn föstudaginn 31. maí nk. kl. 13:30 og er áætlað að honum ljúki eigi síðar en kl. 15:30. Fundurinn verður haldinn á aðalbókasafni Kópavogs við Hamraborg á 2. hæð í sal sem heitir Beckmannsstofa (staðsettur vinstra megin við afgreiðsluna).

Á dagskrá aðalfundarins eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins og laga um félög til almannaheilla nr. 110/2021.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu.
  3. Reikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar.
  4. Lagabreytingar.
  5. Ákvörðun félagsgjalds.
  6. Kosning stjórnar.
  7. Kosning endurskoðanda, skoðunarmanna og/eða trúnaðarmanna.
  8. Önnur mál.

Framangreind dagskrá verður afgreidd í þeirri röð sem að ofan greinir.

Rétt til setu á aðalfundi hafa, samkvæmt 10. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 3 mánuði (þ.e. mars, apríl, maí 2024).

Rétt til atkvæðisgreiðslu á aðalfundi hafa, samkvæmt 11. gr. samþykkta félagsins, þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjald mánaðarlega síðastliðna 6 mánuði (þ.e. des 2023 og janúar, febrúar, mars, apríl, maí 2024).

Ekki er boðið upp á rafræna atkvæðisgreiðslu.

Boðið verður upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur.

Skýrsla stjórnar verður afhent félagsmönnum á aðalfundinum.

Skýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins verða eftir fundinn sett á vefsíðu félagsins eins og lög um félög til almannaheilla gera ráð fyrir.

 

F.h. stjórnar,
Sigurlaug G. Ingólfsdóttir
Formaður Kærleikssamtakanna


Athugasemdir